3. mars 2004

Núna er ég heima hjá mér en er samt í vinnunni... önnur vinnutölvan var numin á brott af geimverum eða tölvukalli og Heiðu fannst leiðinlegt að ég gæti hvorki sagt "n" né "m" þannig að það virtist hentugast að fara bara heim og vinna úr niðurstöðum aðlögunarfærnimatsins mikla og merkilega þar. Nema hvað að það er hundleiðinlegt að vinna heima, enginn til að slæpast með! En ef ég horfi á björtu hliðarnar þá hef ég hér mjúkan snýtipappír (sem er ekki til í selinu) og svo get ég hlaðið inn alls kyns óþarfa inn á tölvuna mína á meðan ég sit hér. Er t.d. núna búin að hlaða inn 67% af friends þætti og á ekki nema (!) tæpa tvo klukkutíma eftir til að klára :)
Annars er ég eitthvað voða andlaus í dag... það þarf eitthvað skemmtilegt að gerast svo ég geti farið að bulla aftur... og þegar ég segi skemmtilegt er ég ekki að meina að fólkið í næstu íbúð kveiki á loftpressunni eða hvern andsk... sem þau eru að gera þarna... garg!

Engin ummæli: