7. apríl 2004

Arsenal tapaði fyrir Chelsea í gær. Það er allt í lagi, ég er ekki svo gallhörð stuðningskona, mér finnst bara gaman að Eiður Smári komist áfram í meistaradeildinni.
Íbúðin mín er komin á netið, gullfalleg! Það getur varla annað verið en að einhver falli fyrir þessari dásemd!
Það er rétt að koma hádegi en mér finnst eins og ég hafi vakað í 1000 ár eins og fjöllin hans Bubba Morthens. Þar sem fólki leyfist að veiða fisk á nóttunni getur það lent í vandræðum úti á sjó á ókristilegum tímum sem leiðir til þess að sími á náttborði hjá fólki eins og Skröggi galar og gólar um miðja nótt og vekur ekki bara bóndann heldur líka bóndakonuna sem segir ekki "Hahahæ nú minkapels ég fæ", heldur "andskotans sími og fólkfífl úti á sjó".
Bumban var skoðuð í morgun og þar var allt í því fínasta. Mosi er "kominn í skotstöðu" eins og pabbi hans orðaði það og það skýrir hið stöðuga álag á blöðru mína er kennd er við þvag. Tilhlökkunarefni að vera stöðugt í spreng í sex vikur eða hitt þó! Annars er fínt að vera til.

Engin ummæli: