13. apríl 2004

Það er barasta ekkert að frétta af þessum bæ eftir allar fasteignahamfarirnar undanfarið. Páskarnir liðu í leti og sleni, hlýddi ljósunni sem sagði að ég ætti að safna kröftum í fríinu áður en ég færi að læra fyrir prófin. Auðvitað tók ég hana á orðinu!
Fröken Fasteignasali leit við í kvöld til að láta okkur undirrita einhverja pappíra. Það er svosem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún rak svoleiðis við í holinu hérna að argasti fjósakall hefði ekki getað betur (verr?).
Æjá, það er gúrkutíð í fréttamennsku á Melunum í dag.

Engin ummæli: