9. maí 2004

Það er of mikið af virku fólki í nágrenninu. Hér beint á móti eru hjónin að hreinsa grindverkið með háþrýstidælu með tilheyrandi hávaða. Í húsinu er einhver að berja með hamri. Og ég sit og eyði of mikilli orku í að pirra mig á þessu ónæði, orku sem gæti annars farið í prófvænni heilastarfsemi. Ef ég ætti nú ennþá eyrnatappana sem Jón Jöklaselur gaf mér forðum daga...
Jæja, best að harka af sér, eftir tvo sólarhringa þarf ég ekki að hugsa meira um próf í marga mánuði!

Engin ummæli: