Gott er að vakna glaður og hress...
...þótt það sé fáránlega snemma á sunnudagsmorgni! Hver leigubíllinn á eftir öðrum ekur hér fram hjá, líklega að skila djömmurum heim.
Í gær fórum við Skröggur í gönguferð niðrí bæ með viðkomu á Segafredo þar sem fæst himneskt vanillufyllt croissant og síðan á bókasafninu þar sem ég borgaði sekt fyrir bækur sem ég tók einhverntímann en nennti síðan ekkert að lesa. Fann bækur sem mig
langar að lesa, aðra hef ég lesið áður en hin er alveg ný á safninu. Svo fórum við í eldgömlu handavinnubúðina á Laugaveginum þar sem ég keypti einhverja bangsamynd til að sauma út! Ég mundi nefnilega eftir því að þegar ég var að bíða eftir grísastelpu fyrir heilum 11 árum gat ég gleymt tímanum við krosssaum...
Ég labbaði eins hratt og ég gat í gönguferðinni því það eykur samdrætti í leginu og þar með líkur á að fæðing fari í gang... en Mosi situr enn sem fastast og bröltir og hikstar í bumbunni.
Ætla að taka aðra svona struns gönguferð í dag... já og bara alla daga þar til eitthvað gerist!
Vorum svo viðstödd þegar lítill kall var skírður og borðuðum mikið af kökum. Við mæðgurnar stálum næstum því senunni frá drengnum, önnur ólétt og hin í gifsi. Grísla var 100 sinnum spurð að því hvað gerðist, sem betur fer slapp ég við svoleiðis spurningar!
Júrósvisjon var vonbrigði, ég hélt með Tyrkjum af því þeir voru í svona Madness fíling sem stakk í stúf við alla vælukjóana þarna. Annars var Ruslana svo sem með því skársta þarna...
Jæja, ætla að fá mér bók á nefið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli