8. júní 2004

Nýja íbúðin mín er að verða fullsköpuð, hefur fengið nýja málningu á alla veggina sína og parket í allar vistarverur nema forstofu og baðherbergi. Núna er verið að setja listana fögru sem kostuðu 400 kr/m (skæl)á sinn stað. Við grísla litla byrjuðum að setja saman nýju kommóðuna hennar (hvað er aftur flotta íslenska orðið yfir kommóðu... drag eitthvað...)en þrátt fyrir að hafa farið á kostum með borvél og hamar náðum við ekki að ljúka verkinu áður en grísla gafst upp og vildi fara að sofa!
Á morgun byrjum við að pakka. Þegar ég lít yfir eigur mínar sýnist mér að ég eigi nú ekki mikið dót, en ég er nokkuð viss um að ég eigi eftir að skipta um skoðun!
Fór í fegrunaraðgerð í morgun, fór eins nálægt hanakambinum og ég þorði og er ánægð með útkomuna, er ekki lengur Solla Stirða heldur meira í áttina að hinum fagra John Taylor bassaleikara í Duran Duran eins og hann leit út árið 1983. Var í svo miklu stuði eftir klippinguna að ég keypti mér skærgulan bol sem stendur á "Blondes are brighter!" Þegar ég verð í honum verður auðvelt að sjá mig þótt ég sé stutt í annan endann...
Lifi ljósið (og ljóskur)!

Engin ummæli: