2. september 2004

Eitt tíst, eitt kvak og tvö söngl... þetta er allt að koma hjá kvekindinu sem er svona álíka duglegt að æfa tjáningu og ég er að læra...
Eldhúsinnréttingin kemur eftir tvær vikur, miklu fyrr en ég átti von á. Pappírar koma úr þinglýsingu á morgun þar sem þeir hafa verið stimplaðir með bleki úr blóði Krists eða einhverjum álíka dýrmætum vökva miðað við hvað við þurftum að borga í stimpilgjöld. Fyrir stimpilgjöldin gætum við keypt ný tæki í nýju innréttinguna en ætli við verðum ekki bara að elda á hlóðum úti í garði þar til peningar fara að vaxa á fíkusnum mínum.
Ef einhvern vantar gullfallega hvíta eldavél með flottu helluborði og viftu í stíl eru slíkir dýrgripir falir fyrir einhverjar krónulufsur þar sem þeir samræmast ekki samspili ljóss og skugga í nýja eldhúsrýminu.
Hef skráð mig í nýja uppsprettu ruslpósts sem ber nafnið GeZtabók GríZZ (sjá hér til hliðar) og ég hvet ykkur lesendur góðir til að skrifa línu og þá mun ég hugsa hlýega til ykkar er ég eyði sorpritunum úr innhólfi mínu.
Andi kaldhæðninnar hefur yfirgefið oss í bili. Hakúna Matata...

Engin ummæli: