Enn einn viðburðarríkur dagur að baki. Ég opnaði ekki bók í dag heldur byrjaði daginn á að heimsækja ömmusystur mína sem var að missa vin sinn. Þetta var í fyrsta skiptið eftir að ég fékk engilinn minn sem einhver nákominn mér missti ástvin og í fyrsta sinn á ævinni sem ég var ekki í vafa um hvernig ég ætti að bregðast við. Svo lengi lærir sem lifir.
Fór svo í bæinn með Bestu frænku og við slæptumst þar heillengi og mér tókst að eyða peningum sem eru ekki til... Get ekki setið á mér að mæla með nýja Te&Kaffi staðnum, hann er kósí, reyklaus og starfsfólkið sagði "takk fyrir komuna!"
Kvöldinu eyddi ég svo í að setja strýpur í ungfrú Jökulrós... FM kerlingakvöld hvað, við toppuðum það með því að hlusta á Led Zeppelin og tala um fagra gítarleikara á meðan ég plokkaði lokkana með heklunál og málaði þá með plastbursta...
Ég strengi þess heit að vera dugleg að læra á morgun!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli