27. apríl 2005

Org og gorg. Ég er búin að sálgreina mig og niðurstaðan er að ég er haldin prófkvíða. Hann lýsir sér þannig að eftir því sem nær dregur prófi eða verkefnaskilum því minni verða einbeitingin og afköstin og ég fer að fresta því sem ég þarf að gera. Missi móðinn og þykist ekki geta þetta. Þess vegna mætti ég ekki í síðasta prófið fyrir jól. Þess vegna er ég ekki löngu búin með ritgerðina mína. Þess vegna er ég ekki með BA próf í sálfræði... Ég hef rúmlega tvær vikur til að klára þessa ritgerð og er að fara að vinna alla helgina. Samt sit ég bara, vafra á netinu og blogga og hugsa um hvað þarf að kaupa í Bónus og hvort það sé komið eitthvað nýtt í Top Shop og hvort ég komist ekki örugglega í dagsferð til Marokkó og hvað ég eigi að taka með í nesti þá því maturinn er víst svo ógeðslegur þar... kannski banana...
Ég verð að vera búin að finna aðferð til að takast á við þessa andlegu veilu fyrir upptökuprófið í haust.
Annars er svosem ekkert dimmt yfir Svínku, það er margt að hlakka til og gleðjast yfir. Ég er til dæmis langt komin með ritgerðarskrattann... Bara að einhver gæti staðið yfir mér með svipu til að auka afköstin!

Engin ummæli: