Letidagarnir eru á enda í bili, byrjaði á vinnutörn í gær sem mun standa fram yfir helgi. Fékk þær frábæru fréttir að það verður boccia mót á laugardaginn sem stendur yfir í fimm klukkutíma. Hjálp! Ég fylgdi einni í boccia um daginn í 2-3 klukkutíma og það gerði næstum útaf við mig, það var svo leiðinlegt. Það væri strax skárra ef ég fengi að vera með, en sem starfsmaður má ég bara horfa. Oj ég fæ hroll þegar ég hugsa um þetta... Hmm, kannski ég taki bara tölvuna með og horfi á dvd á meðan! Nei varla, það gæti truflað boccia liðið... Ég er dæmd til að hálfdrepast úr leiðindum.
Annars hefur lítið borið til tíðinda undanfarið, ég er ekki ennþá búin að taka til í skápnum... ég dreif mig hins vegar til tannlæknis því ég mætti ekki í tékk síðast þegar ég átti að fara. Hann var hinn ánægðasti að sjá mig en líka steinhissa að ég skyldi birtast svona og spurði hvað kæmi til. Ég sagði að skólinn væri búinn, ég væri í fríi í vinnunni og hefði ekkert að gera!
Annars hefði ég átt að finna mér ódýrari afþreyingu því karlinn fann auðvitað skemmd sem þurfti að laga og það er sko ekki ókeypis. En samt betra að borga en að fá kannski tannpínu á Costa del Sol! Þar er núna 23°C og skýjað... eins gott að skýin hafi hypjað sig þegar ég mæti á svæðið!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli