Klukkan 8:15 í gærmorgun var ég mætt í andlitsbað&dekur með Saumó-Önnu. Var búin að gleyma að ég get eiginlega ekki legið á bakinu lengi í einu því þá minnkar blóðflæðið upp í hausinn á mér. Snyrtirinn hafði því ekki undan að ná í púða, taka púða, laga teppið, hækka og lækka bakið á stólnum, tína upp bómullarskífurnar sem hrundu af mér og fullvissa mig um að allt þetta brölt í mér væri allt í lagi... Tveim tímum seinna labbaði ég út með nýjar augabrúnir, silkimjúka húð og endurnærð eftir gott axlanudd. Mér finnst ekki gaman að vera erfiður kúnni þannig að næst þegar ég fer í svona snyrtingu ætla ég ekki að vera með stóra bumbu.
Eftir hádegi hitti ég Mörtu og Hjört niðri í bæ. Hjörtur veit reyndar ekkert að hann hafi hitt mig því hann svaf í vagninum sínum allan tímann. Veðrið var fínt og við röltum í alls kyns barnabúðir og fórum á kaffihús. Gaman að hitta Mörtu, það eru ekki margir aðrir sem ég vil leggja á að tala við um börn og allt sem þeim tilheyrir út í eitt! Það var líka gaman að fara í Þumalínu og ég stóðst ekki freistinguna að kaupa æðislega ullarsamfellu handa krílinu. Samkvæmt ljósmóðurvefnum er þetta vikan sem á að fara að huga að barnafötunum svo samfellukaupin voru vel við hæfi :)
Grísastelpa spilaði með Lúðrasveit Reykjavíkur fyrir sjálfstæðismenn í Laugardalshöllinni. Aumingja barnið að þurfa að skemmta pólitískum andstæðingum sínum en hún komst sem betur fer ósködduð frá þessu.
Í dag er það eitt á dagskrá að fara í sund. Hugsanlega setja í eina þvottavél... en Skröggur fær að sjá um matinn!o
Engin ummæli:
Skrifa ummæli