Morgunn í lífi bumbusvíns
07:25: Skeiða á WC
07:27: Fljótlegur morgunverður til að seðja sárasta hungrið
07: 31: Skríða aftur upp í ból
07: 41: Gefast upp á að reyna að sofna aftur
07: 42: Koma sér vel fyrir með bók
10:59: Uppgötva að það er bara einn kafli eftir af bókinni og maginn galtómur
11.01: Taka teppi af fuglabúri
11.02: Smyrja beyglu
11.03: WC
11.05: Borða beyglu og lesa fréttablaðið
11:08: Muna eftir nóakroppi ofan í skúffu
11:12: Láta undan, troða í sig nóakroppi og coke light
11:16: Samviskubit, ganga frá rest af nóakroppi
11:17: Setja í þvottavél, samviskubit minnkar
11:19: Smá ráp á interneti og blogg
Rest af degi óskrifað blað fyrir utan strætóferðir og sundballet. Hugsa sér hvað ég á fáa daga eftir þangað til letimorgnarnir mínir heyra sögunni til... en vá hvað ég hlakka til :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli