Búin í sumarfríi og búin að flytja.
Bráðum uppfærist ég úr deildarstjóra í forstöðumann. En sem betur fer verð ég bara svoleiðis í þrjá mánuði. Lendi samt í því að þurfa að gera rekstraráætlun og starfsáætlun sem þarf að skila á sama tíma og mesta álagið er í skólanum fyrir jólin. Og miðað við umfjöllun fjölmiðla um sukk í ríkisrekstri verð ég örugglega svo heltekin af þessum áætlunum að ég fell í skólanum. Nema kannski í mannauðsstjórnunarkúrsinum, ég er auðvitað alveg snillingur í að stjórna mannauði, allavega finnst ekki kátara og klárara starfsfólk en á vinnustaðnum mínum. Og það er örugglega bara mér að þakka...
I-ið er að detta af lyklaborðinu svo ég nenni ekki að blogga meira fyrr en ég er búin að laga það eða kaupa nýja tölvu. Allt fínt að frétta annars.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli