Við He-man vorum að lesa í dýra og tölustafabókinni.
Mamma: "Á Íslandi búa tvær tegundir af músum. Húsamús og..."
He-man: "Hagamús. Og músahús í sjónvarpinu!".
Mamma: "Lundinn veiðir fisk með stóra gogginum sínum".
He-man: "Og gefur þessum og þessum og þessum og þessum (bendir á hina lundana á myndinni) og eldar fiskinn líka."
Mamma: "Og hér eru tíu hunangsflugur."
He-man: "Já. Þessi var að kaupa hunang í blóminu."
1 ummæli:
Hvar ertu Gríshildur?
Næstu mótmæli verða við Egilsstaði, "Gríshildi aftur í fæðingarorlof". Greinilega engan tíma til að upplýsa okkur hin um daglegt líf sem útivinnandi Skinka ...
(já og Skinka þýðir víst hot chick í dag....)
kv. Erna
Skrifa ummæli