11. apríl 2006

Annars lagið heyrist í fréttum að hringt hafi verið í lögregluna vegna mikils óþefs úr einhverri íbúð og þegar málið er athugað kemur í ljós sorp í tonnatali sem einhver geðsjúklingurinn hefur safnað að sér í mörg ár. Og þá hryllir maður sig og skilur ekki hvernig þetta sé hægt.

Ég er samt núna að fatta hvernig þetta gerist. Þetta byrjar örugglega á því að íbúinn ákveður að gerast umhverfisvænni og fara með endurvinnanlegar umbúðir í þar til gerða gáma. Svo gerist það að leti hellist yfir íbúann, hann heldur áfram að geyma umbúðirnar en nennir ekki með þær í gám. Smám saman fyllist ruslaskápurinn af tómum cheerios pökkum og öðrum pappaumbúðum. Þegar skápurinn er orðinn fullur er byrjað að raða tómum fernum í kringum eldhúsvaskinn. Égvil ekki vita hvaða staðir koma næst til greina sem geymslupláss fyrir sorp sem er alveg á leiðinni í gám... á morgun SKAL ég lufsast með þetta drasl... áður en nágranninn hringir á lögguna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe geturðu komið við á fleiri stöðum...??? ;)