14. febrúar 2008

Ég blæs hraðar út en BA verkefnið mitt. Á morgun hef ég heilan dag til að liggja yfir því svo seinnipartinn í dag hef ég reynt að hvíla setvöðvana.

Heyrði í kátri stelpu sem fór með bassann minn austur á land á sunndudaginn og byrjar í bassatímum í næstu viku. Hún framkvæmir það sem mig dreymdi um á hennar aldri. Það er ekkert nema frábært. Kennarinn hennar var nemandi minn í grunnskóla þegar hann var níu eða tíu ára gamall. En ég er samt ung...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HMMMM! á hennar aldri - varstu ekki 26 ára (eða eitthvað nálægt því) þegar þú keyptir bassann og fórst í FÍH?
Vá hvað er farið að styttast í nýja snúlla, líður ekkert smá hratt.