27. janúar 2005

Þar sem ég er ekki bænheit manneskja langar mig að biðja alla velunnara mína að leggjast á bæn til hvers þess máttar sem þeir halda að hafi eitthvað að segja um framvinduna í þessu jarðlífi. Fyrir utan frið á jörð og allt það óska ég þess að eitthvað af eftirtöldu gerist:
  • Það kemur upp tölvuvírus í Landsbanka Íslands og eyðir öllum tiltækum gögnum um hvernig ég notaði visakortið mitt í desember s.l.
  • SFR gerir albesta kjarasamning sögunnar fyrir mánaðarmótin og hann verður afturvirkur til 1. nóvember s.l.
  • Við hreingerningu á heimili mínu kemur í ljós lottómiði með a.m.k. fjórum réttum+bónustölu.
Annars allt fínt að frétta, fæ loksins að sjá framan í Ronju í kvöld. Ætli ég bjóði henni ekki bara vatnsglas og kannski þurra brauðskorpu ef hún verður þæg...


Engin ummæli: