29. apríl 2006

Ég var að fletta blaði um daginn og rakst þá á grein um hvernig hægt er að minnka bensínkostnað. Þar sem ég er í fæðingarorlofi er lítið í peningatanknum þessa dagana og því enn sorglegra að sjá á eftir peningunum ofan í bensíntankinn. Þessi grein kom því eins og himnasending. Hér má sjá bút úr greininni:

Eins og áður sagði er ég í fæðingarorlofi og hef því nægan tíma til að dunda mér við hitt og þetta á meðan barnið sefur. Ég fór á helstu hamborgarastaði borgarinnar og hirti afganga í nokkrar vikur. Mér til mikillar ánægju náði ég nægri fitu í eldsneyti sem dugar út þetta ár að minnsta kosti og úr öðrum matarafgöngum sem slæddust með setti ég saman faratæki sem hæfir orkugjafanum.
Skröggur á nýja ökutækinu.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snillingur:-D

Nafnlaus sagði...

Snilllld :)
kveðja

Leifurr