Í dag er ég búin að fara í mónitor, drekka hindberjalaufste í lítravís og þramma upp og niður Bankastræti og Skólavörðustíg. En ég held að ég sé ekkert á leiðinni á fæðingardeildina í dag.
móðir mín heldur því staðfastlega fram að fjóla systir hafi fæðst tveimur vikum fyrir tímann vegna þess að móðurbróðir hennar (mömmu) lét hana fá brjálað hláturskast.
að sjálfsögðu dettur mér enginn sniðugur brandari í hug til að fylgja þessari sögu en ef ég man rétt kanntu að flissa yfir auði haralds. spurning um að lesa aftur um kremtertukeppnina eða slæmar silfurskeiðar nýja helmingsins.
6 ummæli:
,,I feel U sista" væri sagt í útlöndunum.
Verst að MT52 er fullt af hori - en kaffi þar er örugglega töfralausnin!
það er ekkert annað... vona að hann fari að láta sjá sig...
Laugarvegsgangan okkar þarna um árið gerði nú samt aldeilis gagn ;)
Ertu ekki búin að panta sterku pizzuna sem ég sagði þér frá. Fullt af jallapeno og hríðarnar byrjuðu 4 klst seinna !!
Anna Svandís
Jú ég er búin að éta jalapeno pizzu...
móðir mín heldur því staðfastlega fram að fjóla systir hafi fæðst tveimur vikum fyrir tímann vegna þess að móðurbróðir hennar (mömmu) lét hana fá brjálað hláturskast.
að sjálfsögðu dettur mér enginn sniðugur brandari í hug til að fylgja þessari sögu en ef ég man rétt kanntu að flissa yfir auði haralds. spurning um að lesa aftur um kremtertukeppnina eða slæmar silfurskeiðar nýja helmingsins.
Skrambinn, búið að loka bókasafninu...
Skrifa ummæli